klapp á bakið
20.01.2007 16:35:19 / Tinna

Halló kalló bimbó

Vildi bara vekja athygli á því að ég er flutt til Köben með honum Andrési mínum (allavega næsta hálfa árið) og við erum með nýja síðu saman... =)

addiogtinna.com

Kveðja,
Tinna

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 16:28:12 / Tinna

Hressandi

Ég fór á fótboltaleik í gær! Það er að verða jafn sjaldséð og hvítir hrafnar þessa dagana, en ég fékk mig til þess að kíkja á eitt stykki Fylkisleik til þess að gera mér dagamun. Svo við héldum af stað, ég, pápi, Helgi og Gunnsi á Kópavogsvöllinn þar sem við horfðum á Fylkismenn fá það í rassinn, ef svo mætti að orði komast. Neinei, þetta var nú ekki svo slæmt tap....En svo er það nú svo fyndið með þessa fótboltaleiki, því að ég horfi eiginlega minnst á leikinn sjálfan. Borga eiginlega bara 1200 kall inn til þess að geta skoðað fólkið, dáðst af fallegu gelnöglunum mínum og hlæja að ofsafengnum aðdáendum. Mikið voðalega geta þeir verið fyndnir.. Klassísk lína hjá föður mínum gæti hljóðað svona: "Dómari!!!!! Vilt' ekki bara fara í grænu treyjuna!!!!!!" ....eða hvaða lit sem liðið er að spila í á móti Fylki... Já þeir eru hressir þessir stuðmingsmenn, sumir allt of skrækir til þess að vera eitthvað að æsa sig eða segja bara einhverja dellu. Fyndið hvað dómarinn hefur alltaf rangt fyrir sér í augum alvöru áhorfenda....

Svo vildi það svo skemmtilega til að gamla, góða '99 tölvan okkar ákvað skyndilega að krassa. Því erum við búin að vera tölvulaus heima fyrir í þónokkurn tíma, og er ég því að skrifa þessa færslu á vinnutíma. Hjálpi mér! En ég er svo heppin að vera búin að redda mér glæsilegri, tiltölulega nýrri tölvu á 20 þús kall! Með hjálp Andrésar, auðvitað, en hann benti mér á síðu þar sem hægt er að auglýsa hluti sem þörf er að losna við, eða kaupa notað. Mjög sniðugt. Slóðin er www.molar.is/listar/partalistinn
Þannig að nú í kvöld bjóðum við velkominn nýja fjölskyldumeðliminn sem enn hefur ekki hlotið nafn. Megi hann lifa vel og lengi!

» 14 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 23:08:17 / Tinna

Interrail

Nína og Lena eru að flakka í Evrópu þessa stundina. Eru búnar að fara um allt, Rúmeníu, Grikkland, Slóvakíu, Búlgaríu, Ítalíu.... You name it! Og þær eru alveg fáránlega duglegar að taka myndir, þær mega nú eiga það. Svo uppfæra þær myndaalbúmin voða reglulega, svo að fólkið sem er að kúldrast heima á Íslandi í prófum og vitleysu hafi nú eitthvað til þess að brosa yfir. Ég er búin að vera voðalega dugleg að skoða myndirnar þeirra, og ég var eiginlega að komast að því núna fyrir tveimur mínútum að mér er farið að þykja voða vænt um þessa tvo stráka sem þær eru búnar að vera að ferðast með upp á síðkastið, Mark og Lee frá Essex. Mér finnst eins og ég hafi séð öll svipbrigði sem þeir gætu mögulega átt, og svo fékk ég meira að segja að tala við hann Mark í síma um daginn þegar Nína var voða full. Þeir virka bara eitthvað svo notalegir.
Æ mér fannst það bara fyndið. Að vera farið að þykja vænt um manneskjur sem ég hef aldrei séð. Þá veistu það Nína!
En ef einhver hefur áhuga á að kíkja á ferðalag þeirra stallna þá getið þið kíkt á www.fotki.com/ninatumi2, ninatumi3 og nú nýlegast ninatumi4

En hvað er samt málið með þetta útlandamistur yfir borginni í dag? Svo var sólin bara rauð!! Ég er ekki frá því að það sé bara að koma heimsendir... Freaky shit.
Æ gefið mér séns, ég er ekki vanalega svona leiðinleg. Er í prófum...


Verum hress!

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 19:39:51 / Tinna

Hress helgi!


Ég var að koma heim úr Kolaportinu. Var að hjálpa vini mínum að selja þessi einstaklega fallegu kerti sem hann er að kynna fyrir landanum. Gæðavara framleidd í Kína, hvað annað? Þetta eru sem sagt kerti með örgjörva og ljósleiðara til þess að kalla fram hina ýmsu liti inni í kertinu sjálfu. Svakalega smart.. ;)


Það er alveg merkileg stemmningin inni í Kolaportinu.. eiginlega engu lík. Það er einhvern veginn alltaf fullt af fólki, en samt hvergi nokkuð áreiti. Ekki þessi sami kliður og hávaði eins og þekkist í verslunarmiðstöðvunum. Þangað kemur alls konar fólk, mestmegnis gamalt fólk, útlendingar og fólk með ýmsar geðveilur. Hann Gauti vinur minn þekkti marga gamla skjólstæðinga sína mannmergðinni frá því hann var að vinna hjá Samhjálp. Sumir koma þangað hverja helgi, margir eru einhvers konar sérvitrir safnarar, því að auðvitað leynast verðmæti inn á milli skransins. Já, þarna er um auðugan garð að gresja. Ég gerði meira að segja ansi skemmtileg kaup þarna í lok dagsins. Konan við hliðina á okkur (sem var rosalega gaman að spjalla við, en alveg einstaklega léleg og lin sölukona) var með hina ýmsu kjóla til sölu hjá sér, og þar á meðal þennan fallega gamla brúðarkjól. gauti fékk mig til þess að máta hann upp á grín, og hann bara passaði svona vel þannig að ég keypti hann af Önnu hressu á heilar 1000 krónur. Hún hefði vel getað selt hann á mun meira... Ekki það að brúðkaup sé í vændum, en bara gaman að eiga hann! hahahaha



Heyrðu, svo var stúlkan bara að dimmitera á föstudaginn. Loksins komið að því að fara að klára þennan blessaða skóla... En dagurinn var frábær í alla staði, heiðskírt og logn allan daginn, en hann byrjaði á morgunverði niðri í skóla með kennurunum, svo var haldið í morgundrykkju til Sigríðar Eirar, haldið niður í skóla á ný fyrir Dimmision skemmtun, og loks haldið niður á Austurvöll þar sem var sungið við gítarspil og drukkið fram eftir degi. Um kvöldið var síðan afar vel heppnað djamm á Hverfisbarnum þar sem bjórinn var þambaður örlítið meir. en á meðan ég man, þá tók ég helling af myndum sem er hægt að kíkja á hér til hliðar! Stuuuð




Ég nývöknuð og afskaplega glaseygð eftir tveggja tíma blund á Dimmision dag. Nokkrum mínútum seinna sendi mamma mig akandi heim til Siggu að ná í dótið mitt. Hún sagði mér bara að fá mér nóg af vatni og sterkt tyggjó.... Go mamma!

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 12:41:55 / Tinna

Annáll

Jæja, þá fer að koma að öðrum tímamótum í lífi mínu. Nýorðin tvítug og útskriftin á næsta leiti.... Mér finnst það voðalega skrítið, en á sama tíma ótrúlega gaman að vera orðin svona gömul. Undarlegt hvað þessi önn hefur liðið hratt. Það er bara svona ef maður hefur nóg á sinni könnu. Svo kemur sumarfríið og ágætis 8-4 vinna með því, en hvað tekur svo við?? Hver veit. Það er svo margt sem býðst. Mig langar alveg rosalega að ferðast eitthvað og prófa eitthvað nýtt. Veit samt ekkert hvert mig langar að fara og í hvaða tilgangi.. Veit bara að háskólanám má bíða í eitt ár eftir mér. En nóg um það...

Það er nóg að gera í kringum leikritið okkar MH-inga um þessar mundir. Ég sé um förðunina ásamt fleiri góðum stúlkum og eru núna búnar alveg fimm þrusugóðar sýningar. Þeir eru svo ótrúlega góðir þessir krakkar, að hvaða atvinnuleikhópur sem er mætti vera stoltur. Og dómarnir sem þau fengu í Morgunblaðinu. Þið eruð geðveik! Mæli með þessari sýningu við alla!

Æjj, ég er voðalega andlaus eitthvað. Get ómögulega komið með eitthvað sniðugt. Fannst ég bara knúin til þess að halda uppi heiðri þessarar blessuðu síðu. Annars var ég að setja inn nýjar myndir frá afmælinu hennar Nínu frá því í Janúar og nýlegu afmæli mínu. Kíkið á það ef þið nennið.. : p

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 02:25:57 / Tinna

Árshátíð.....

Hæ krakkar mínir. Ég var að koma heim af fokking fjórðu árshátíðinni minni, og jafnframt þeirri síðustu í þessum skóla og hún var vægast sagt ömurleg. Hér kemur mynd sem lýsir henni algerlega í hnotskurn. Þetta eru sem sagt fæturnir á mér núna rétt áðan:



Bless lömbin mín, ég er farin að lúlla. Loksins...

» 8 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 17:59:45 / Tinna

Ég hef verið klukkuð!

Jæja, börnin góð. Hér eftirfarandi eru smá upplýsingar um
mig sem ég verð að láta af hendi, þar sem ég var klukkuð af henni Jóhönnu
minni: :haha:

4 störf sem ég hef unnið um ævina:

kassadama í 11-11 (var ekki nema 14-15 ára og að selja

sígarettur, obb obb)
afgreiðslustúlka hjá Ís-inn í Smáralind (alveg fáránlega ömurleg vinna)
afgreiðslustúlka í Mosfellsbakaríi á Háaleitisbraut (fín vinna og skemmtilegar
stelpur að vinna með mér, bara ekki nógu vel launuð)
Sölumaður í símaveri Hive og það er fáránlega fín vinna!

4 bíómyndir semég gæti horft á aftur og aftur og aftur...:

Dumb & Dumber
Zoolander
Finding Nemo
Who Framed Roger Rabbit?

 

4 staðir sem ég hef búið á:

Tryggvagatan á Selfossi
Álftarimi 28 á Selfossi
Skógarási 1 í Selásnum
Og nú í Hraunbænum

 

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:

Nip/Tuck trónir á toppnum! Besta
sjónvarpsefni sem um getur!!
Desperate Housewives, líka alger
snilld
The Shield - Var að komast inní
þetta núna nýlega, hafði ekki hugmynd um að þetta væru svona góðir þættir
Friends hljóta að slæðast hingað
með. Klassískt efni með Ross í broddi fylkingar

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Köben, að sjálfsögðu
Lanzarote, undurfalleg eyja sem tilheyrir Kanarí
Orlando og Bradington í Flórída
Costa Del Sol - ástarhreiðrið

4 síður sem ég skoða daglega (fyrir utan blogg):

www.kbbanki.is
www.hotmail.com
nemendur.inna.is
Þessar síður skoða ég nokkrum sinnum í viku, en alls ekki daglega...

4 matarkyns sem ég held uppá:

Hellingur af ljúffengum súpum -
Kjötsúpan og fiskusúpan hennar mömmu, humarsúpan hennar Siggu og tómatsúpa með eggi....
Unaðslegar og rauðar nautalundir
Góður hamborgari... er ég sveitt?
Kalkúnn, ef hann er almennilega eldaður og mega-djúsí

4 bækur sem ég les oft:

Ég les bækur aldrei oft, nema kannski barnabækur - afsakið

4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna:

Sitjandi á barnum við ströndina í tunglskininu á Lanzarote, með Adda á móti mér og besta Mojito í heimi í hönd... mmmm
Í nýju íbúðinni hjá Önnu sis og Are í Köben.
Í nýju íbúðinni hjá Helga bró og Emmu í Växjö.
Svamlandi í volgum sjó fyrir utan hitabeltisströnd með köfunargræjurnar á.

4 krúttíbollur sem ég ætla að klukka:

Auður
Dóra
Jens og
Katrín


 Ég verð líka að sýna ykkur smá mynd af fótbroti hjá fótboltakappanum Bust frá árinum 1996. Bróðir minn vildi endilega sýna mér þessa mynd, í kjölfarið af fótbroti Alan Smiths um helgina.

http://footballfantasies.tripod.com/sitebuildercontent/sitebuilderpictures/bussted.jpeg



» 4 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 15:03:37 / Tinna

Kólera

Vá hvað ég er léleg......... Meira en tvær vikur frá síðustu færslu.......

Hér er sniðug mynd.


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 08:29:27 / Tinna

Gleðitíðindi!

Afsakið seinkun þessa á nýrri færslu, hef bara verið önnum kafin við að koma mér inn í nýju vinnuna mína... Hún er rosa skemmtileg, og þar að auki vel launuð. Eða það fer reyndar eftir því hversu dugleg ég er. Ég var semsagt núna um miðjan janúarmánuð að byrja að vinna hjá fyrirtækinu Hive, þar sem ég mæti í fjóra tíma á þriðjudags- og miðvikudagskvöldum og hringi í fólk til þess að bjóða þeim tengingar. Er ég bæði með fast tímakaup, og einnig fæ ég bónusa fyrir hverja sölu. Í gær vann ég mér inn 16500 fyrir fjóra tíma, og er afskaplega stolt af sjálfri mér fyrir vikið. Ef ég vinn mér inn annað eins í kvöld þá verð ég komin með það sama og ég fékk útborgað hjá bakaríinu, á aðeins tveimur dögum. Pretty sweet... En nóg um það.

Rosalega er maður nú orðinn leiður á skólanum annars... Finn fyrir þessu núna flesta daga, en sérstaklega þó í gær. Það bara er einfaldlega ekki hægt að halda einbeitingu í sumum tímu. Gott dæmi er líffræði.Kennari gefur okkur glósur á blaði, þannig að við gerum ekki neitt nema hlusta, og það er afskaplega erfitt að finna athyglina á þennan veg. En mér til dundurs í gær, þá uppgötvaði ég að Sigríður líffræðikennarinn minn talar alveg eins og Siggi Sigurjóns. Þessu varð ég auðvitað að hvísla að stöllum mínum mér til beggja handa og þær voru mér sammála, og flissuð með mér í smástund. Þetta tók svona eina og hálfa mínútu, og svo vorum við komnar aftur í sama eirðarleysið.   Það verður nú gott þegar þessi blessaða önn klárast og ég verð orðin stór.

En svona meðan ég man, þá langar mig að smella á ykkur löngu tímabærum klæðskiptingi "vikunnar", sem að þessu sinni er nokkuð smekklegri en oft áður. Það er sem sagt enginn annar en leikarinn Tim Curry í hlutverki sínu í The Rocky Horror Picture Show, og er hann mjög sætur í þessu gervi sínu.

En, jæja, ég neyðist víst til þess að þjóta í jóga. Bæbbs!


» 9 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 01:41:28 / Tinna

Hæbbs

Mikið eeeeelska ég helgar. Þetta er önnur helgin mín þar sem ég hef legið í leti bæði laugardag og sunnudag. Ég ætla mér nú ekki að gera þetta allar mínar helgar það sem eftir er af skólanum, en allt í einu er svo rosalega gott að geta gert ekki neitt. Sofið fram eftir, glápt á heilu seríurnar af skemmtilegum þáttum og kannski lært í hálftíma.
Ég kann loksins að meta helgarnar almennilega, því að ég hef alveg frá því ég var 13 ára og þangað til núna í janúar verið í vinnu sem krefst helgarvinnu. Núna er ég komin með þessa líka frábæru vinnu hjá úthringiveri Hive, og mæti þangað í fjóra tíma alla þriðju- og miðvikudaga. Það er geðveikt.

Ég held samt að með þessari helgarleti þá sé ég smátt og smátt að sökkva dýpra í myrkan heim drykkju og fjárhættuspila. Í gær fór ég á fyllerí, og áðan spiluðum við póker. Ekki enn upp á peninga, enda var ég að læra. En ég tapaði, svo það var gott að það voru engir peningar í spilinu. Hahaha, í spilinu! Bókstaflega. Vá.

En ég verð að hætta... Addi er að bíða í nautanærbuxunum sínum. Bæ


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 16:55:32 / Tinna

Klæðskiptingur vikunnar

Jæja, ætli maður verði ekki að reyna að halda aðeins í hefðina og bæta inn nýjum klæðskiptingi "vikunnar". Þær eru nú þó orðnar nokkrar vikurnar síðan að síðasti klæðskiptingur leit dagsins ljós, en hvað um það. Batnandi mönnum er best að lifa.

Klæðskiptingur vikunnar að þessu sinni er svokallaður pre-op kynskiptingur. Það stendur fyrir það að hann er búinn að láta breyta einhverju af þessu einfaldara. Bæta við brjóstum (og þessum fínu brjóstum líka!), taka inn hormón og losa sig við ýmis karlmannleg einkenni. Typpið er þó skilið eftir í bili. Kannski af því að viðkomandi er að spara, því þess konar aðgerðir eru dýrar, eða ef til vill finnst honum voðalega skemmtilegt og spennandi að geta komið með óvæntan glaðning þegar kemur að skyndikynnum.
Sumum þykir þó ekki svo vænt um þess konar glaðninga eins og þið sem hafið séð Nip/Tuck 3 seríuna vitið.


 

» 8 hafa sagt sína skoðun

06.01.2006 18:42:53 / Tinna

!

Ég hata fordóma. Og samt veit ég að ég er með fullt af fordómum, suma þó án þess að vita af því sjálf. Eru ekki allir í heiminum með einhverja fordóma? Einir eru þó fordómarnir sem ég hef og það er gagnvart ofsafenginni kristinni trú. Eða í rauninni gagnvart öllum ofsafengnum trúarbrögðum. Ég veit að ég er ekki ein um að finnast þetta. Hver hefur ekki litið kristilega hópinn í skólanum hornauga sem er með bænastundir í einni af stofunum? Allavega ég. Auðvitað eiga þau ekki skilið að vera dæmd af okkur hinum, en kannski horfa þau á okkur sömu augum og vorkenna okkur fyrir að hafa ekki verið svo heppin að frelsast. Ég hef þessa fordóma vegna fáfræði, eins og allir aðrir sem hafa fordóma, en ef að einhver kæmi með góð... og rökrétt rök... fyrir því af hverju Guð er svona frábær myndi ég vitanlega hugsa mig tvisvar um.

Svo er til önnur tegund af fordómum ( eða er hún allt önnur?), og það er þessi gamaldags hugsunarháttur eins og hommahatur. Ég verð vitni að fordómum gagnvart samkynhneigðum allavega einu sinni í mánuði því að kærastinn hennar mömmu eeeeeelskar að núa því um nasir okkar systkinanna hversu ógeðslegir hommar séu. Honum finnst það mjög töff, og greinilega gaman að fá kuldaleg viðbrögð frá okkur systkinunum. Hann talar þó aldrei um lesbíur. Af hverju skyldi það vera? Hann kemur ósjaldan með yfirlýsingar eins og: "Þegar borgarstjóri Rússlands var einu sinni spurður hvort að þeir ættu ekki að hafa Gay Pride skrúðgöngu í Moskvu, þá sagði hann bara einfaldlega Njet. Djöfull myndi ég taka í spaðann á honum ef ég hitti hann úti á götu". Þetta er nokkuð dæmigert um yfirlýsingarnar hjá honum. Annars ekki alslæmur maður þar á ferð. Bara gamaldags. Mikið svakalega getur verið erfitt að þurrka út gamlar venjur, og ekki er hann nú gamall maður, rétt rúmlega fertugur. En það er víst ekkert annað hægt að gera en að bíða og sjá hvað setur. Við erum næsta kynslóð til valda í þessu litla landi okkar og vonandi náum við að láta eitthvað gott af okkur leiða..



» 6 hafa sagt sína skoðun

05.01.2006 11:08:57 / Tinna

Halló krakkar

Ég var að skrifa alllanga færslu og hún hvarf. Ég er fáviti, og ekki sátt. Tölvur eru ömurlegar. Góðu fréttirnar eru hins vegar að ég er búin að sættast við iPodinn minn. Ég skrifaði um daginn færslu um hann þar sem ég bölvaði honum í sand og ösku ( á blogspot.com/tinnadan, sem er var að hætta með af hræðslu við að verða ósjálfbjarga..) en þetta grey átti þessi ljótu orð alls ekki skilið. Núna gengur honum vel, og er að fyllast af skemmtilegum lögum. Ó, blessi hann.

Áramótin voru hressandi, allir voru í þvílíku stuði heima hjá pabba, hattar og sprell, og hörkufínn matur í alla staði. Tók heilan helling af myndum sem af einhverjum völdum koma allar í ruglaðri tímaröð hér á myndasíðunni til hliðar. Fín gestaþraut bara. Svo var það áramótaskaupið, sem allir hötuðu og Addi gerði í því að kúka yfir í tíma og ótíma, en fjölskyldu minni (ég meðtalin) fannst frábært í nánast alla staði. Nema augljóslega Hörmuleg Kringluatriði Ladda og Eddu, auk ógelymanlega grænmetisrappinu. Alger hörmung. Mér fannst eiginlega allt annað fáránlega fyndið.. Áramótin enduðu svo á skemmtilegan hátt, Nína litla endaði á dýnu á gólfinu í herberginu hans Adda á nýársnótt, eftir að hafa tekið leigubíl upp á 4000 krónur heim til Árna vinar hans Adda. Það var stuð!

Jæja, ætli sé ekki best að snúa sér aftur að önnum fyrsta skóladagsins, þarf að fara að selja bækur og kaupa eina bók. Held ég komi bara út í gróða þessa önnina! Eins gott að maður finni sér eitthvað að gera, er alltaf í þreföldu gati á fimmtudögum. Veiii!! Bæjó


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.12.2005 22:57:17 / Tinna

obb obb obb

Halló halló krakkar! Ný síða já, hún er sniðug. Bless. www.tinnadan.blogspot.com Bara af því að blogspot er miklu sniðugra. Bless Ásdís biður að heilsa já

» 9 hafa sagt sína skoðun

11.12.2005 01:25:44 / Tinna

Unaður

Ohh, það er yndislegt hvað vinir geta verið hjálplegir stundum. Já, ég er að tala um þetta einstaka fólk sem lætur sér ekki nægja að hvetja þig áfram, heldur vindur sér sjálft í hlutina, án alls hiks, og það ekki síðar en strax. Katrín, ég er að tala um þig.

Hún Katrín var sú eina sem sá virkilega  í gegnum gervilega kæti mína yfir nýstofnaðri bloggsíðu minni. Hún sá í gegnum grímuna sem ég setti upp í hvert skipti sem ég hugðist bæta einhverja við síðuna. Hún fann fyrir öllum þeim tárum sem höfðu verið felld síðustu misseri, og þau sem hún sá fram á að myndu halda áfram að falla. Hún sá að ég var ráðþrota, örvingluð í hringiðu tækninnar. Hún sá að ég þurfti að losa mig við þann þrælahaldara sem blog.central.is var. Þess vegna stofnaði hún nýja síðu fyrir mig án minnar vitundar, www.tinnadan.blogspot.com, og frelsaði mig samstundis úr prísundinni. Hvað hefði ég annars gert? Hefði ég ekki að lokum gripið til þess örþrifaráðs að kasta mér fyrir björg? Jú, það held ég. Og fyrir þessa vefsíðu verð ég þér ævinlega þakklát Katrín Björgvinsdóttir. Þú ert verndarengillinn minn.

Verst að ég kann ekki lykilorðið.



» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2